Borði

Sumarvinna á fjöllum


Stjórn barst þetta erindi frá 
Íslenskum fjallaleiðsögumönnum:

Íslenskri Fjallaleiðsögumenn auglýsa eftir leiðsöguefnum til að vinna í jökla- og fjallaleiðsögn sumarið 2012. 

 

Fjögurra daga nýliðaþjálfun fer fram í apríl.

 

ÍFLM er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði ævintýratengdrar ferðaþjónustu. Jöklaferðir eru þekktasta vara fyrirtækisins en stærstur hluti starfseminnar er þó þjónusta við ferðamenn í lengri gönguferðum. Þessar gönguferðir eru allt frá því að vera stuttar dagsferðir yfir í að vera 30 daga ganga þvert yfir Ísland og þverun Grænlandsjökuls á gönguskíðum.

 

Fyrir þá leiðsögumenn sem starfa í leiðsögn á jökum og fjöllum er rekið þjálfunarprógramm sem ekki á sinn jafningja hér á landi. Gerð er krafa um að leiðsöguefnin komi inn í nýliðaþjálfun með grunn í fjallamennsku og línuvinnu. Flestir ÍFLM leiðsögumenn hafa þennan grunn úr starfi í björgunarsveitum. En einnig er hægt að fá reynslu á þeim námskeiðum sem ÍFLM & ÍSALP reka, á námskeiðum erlendis eða með ástundun fjallamennsku. 

 

Fyrirtækið leitar að einstaklingum sem hafa nægilega tæknilega færni til að hreyfa sig af öryggi á jöklinum, geta framkvæmt einfaldar sprungubjarganir og tekið þátt í flóknari aðgerðum sem hluti af liðsheild. Viðkomandi verður einnig og ekki síður að vera fær um að skemmta gestum sínum, fræða þá og tryggja öryggi þeirra í krefjandi landslagi. Verkefnum til einstakra leiðsögumanna er úthlutað í takti við getu og reynslu. 

 

Þeir sem hafa áhuga á að gerast hluti af ÍFLM teyminu eru hvattir til að senda grunn upplýsingar um sjálf sig og þekkingu / reynslu í fjallamennsku á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Athugið að starfið hentar báðum kynjum. 

 

Það að hafa meirapróf og að hafa lokið Fyrstuhjálp í óbyggðum telst mikill kostur. 
Gerð er krafa um góða ensku kunnáttu og kunnátta í öðrum tungumálum er mikill kostur. 

 

Nánari upplýsingar um verðlaunað þjálfunarkerfi ÍFLM má finna hér: http://www.fjallaleidsogumenn.is/Umokkur/Menntunogrettindileidsogumanna/

 

Vinna hjá ÍFLM yfir sumarið gefur einnig tækifæri á vetrarvinnu sem getur verið hvort sem er um helgar eða fullt starf fyrir rétta aðila.
Þeir leiðsögumenn sem hafa hæfileika á sviði klifurs, skíðamennsku og tungumála eiga góða möguleika á að geta síðar unnið í krefjandi verkefnum tengdum sinni sérhæfingu - svo sem lengri gönguferðum, fjallaskíðun og ísklifurleiðsögn. 

 

Alferðadeild er einnig að leita að þýsku og frönsku mælandi leiðsögumönnum í lengri ferðir. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  tekur við umsóknum og gefur upplýsingar um störf í alferðadeild. 


Segðu þína skoðun
Þú verður að vera skráður inn eða þarft að skrá þig til að taka þátt í umræðunni.