Skrifað af: Guðmundur Freyr Jónsson
Þriðjudagur, 20. desember 2011 18:30
Mikil sósíalstemming var í Múlafjalli þar sem Jólaklifur Alpaklúbbsins var haldið sl. laugardag.
Leiddar voru upp nokkrar leiðir þar sem komið var fyrir akkerum til ofanvaðs og var svo bara gengið á milli lína til að fá að prófa hverja leið.
Sami staður var notaður og á festivaldeginum kalda í fyrra, austan við gilið sem oft er notað til niðurgangs þegar klifrað er upp löngu leiðirnar.
Þrjú teymi fóru í Rísanda, mikið skrapað í bæði kletta og ís við gilið þar sem fjöldinn var og ein leið austar var tekin.
Aðstæður í Múlafjalli voru með besta móti, mjúkur jólaís, skemmtilegar regnhlífar og ekkert of mikið af ís heldur svo hægt var að nota klettana líka.
Sama dag fóru nokkrir í skíðahóp í Tindfjöll þar sem skyggni var ekki nógu gott.




Segðu þína skoðun
Þú verður að vera
skráður inn eða þarft að
skrá þig til að taka þátt í umræðunni.