Borði

Veturinn er kominn í Tindfjöll

Helgina 4.-6. nóvember renndum við Sissi, Katrín kona hans og Hrönn Ólafsdóttir upp í Tindfjöll. Markmiðin voru svosem ekki háleit; bæla fletin, borða mat og ef færi gæfist, viðra sig. Alltsaman hafðist þetta, sumt talsvert betur en annað.
Færðin uppeftir var prýðileg, svo til enginn snjór og leiðin greið upp að Tindjallaskála ÍSALP. Einn skafl ofanvið neðsta skála var engin hindrun fyrir Hvíta Indjánann hans Sissa.
Fyrir þá sem ekki vita er skálinn í feykilega góðu ástandi, tandurhreinn frá rjáfri og niðurúr, rúmgóður (þannig séð), vindheldur og hlýr. Það fór enda ákaflega vel um okkur í óveðrinu sem gekk yfir fyrstu nóttinu. Veðrinu slotaði reyndar ekki nema lítillega alla helgina, á meðan gestir rétt brugðu sér út í klukkutíma, svona til að gróa ekki alveg við kojurnar.
Fannfergið ágerðist þegar á leið og vissara að drífa sig niður í björtu á sunnudeginum. Það stefnir í góðan vetur í Tindfjöllum.




Segðu þína skoðun
Þú verður að vera skráður inn eða þarft að skrá þig til að taka þátt í umræðunni.