Borði

Skessuhorn 2011

Nýliðaferð var farin á Skessuhorn 2. apríl 2011. 16 Ísalparar skelltu sér í hópferð upp NA-hrygg Skessuhornsins í blíðskaparveðri laugardaginn 2. apríl 2011.

Snjór var talsverður á svæðinu og voru brekkurnar þræddar og farið milli kletta þar sem minnstar líkur væru að fá yfir sig snjófarg af verri gerðinni þegar nálgast var hrygginn. Á miðri leið skíðuðu svo nokkrir franskir ofurhugar niður austurhlíðina framhjá okkur.

Ferðin gekk í alla staði vel og útsýni var frábært og veður gott eins og sést á myndunum.


Segðu þína skoðun
Þú verður að vera skráður inn eða þarft að skrá þig til að taka þátt í umræðunni.