Skrifað af: Halldór Albertsson
Mánudagur, 30. maí 2011 19:27
Vegna slyss í Valshamri í morgunn(Sunnudag 29.maí) fannst mér réttast að skýra frá hvað gerðist.
Slysið varð eftir að við systkinin höfðum sett upp toprope í leið 3, Stóplægt. Línuna klippti ég í akkerið fyrir ofan leiðina. Systir mín ætlaði þá að prófa að síga niður, en hún hefur ekki prófað það áður. Ég byrjaði þá að því að þræða línuna í gegnum túbu svo hún gæti sigið í tvöfaldri línu. Svo festi ég túbuna í beltið mitt svo hún sæi hvernig hún ætti að vera og hvað ætti að gera. Allt virkaði rétt. Svo festi ég hana inn og gerði hana klára. Eftir það gekk ég niður svo ég gæti bremsað hana neðan frá ef hún skildi missa takið.
Það sem svo líklegast gerist er að þegar hún fer fram af brúninni tekur hún í karabínuna í akkerinu og við það opnast hún og línan fer úr karabínunni. Það er það eina sem mér dettur í hug að hafi getað gerst miðað við hvernig línana var í túbunni þegar hún kom niður. Systi mín vildi svo einnig meina að línan hefði farið úr akkeriskarabínunni svo það er mitt besta boð.
Því næst sé ég hana koma á fleygiferð niður í áttina að mér. Sem betur fer fellur hún með fæturna á undan og ég næ að "grípa" hana þegar hún lendir.
Svo dettum við nokkra hringi saman áður en við stöðvumst.
Hún slapp ótrúlega vel og gekk sjálf niður að bílastæðinu og mættum við nokkrum ÍsÖlpurum á leiðinni upp, en held við höfum ekki meikað mikið sens enda bæði í sjokki.
Því næst keyrðum við upp á slysadeild þar sem læknarnir halda henni yfir nótt til eftirlits en hún er ekki illa slösuð enda ótrúlega hörð af sér.
Ég get bara verið vitur eftir á og hefði auðvitað átt að setja læsta karabínu í akkerið og láta hana að síga úr henni. Það er lítið hægt að gera úr þessu annað en að vona að þetta verði áminning fyrir alla klifrara að það er aldrei of varlega farið. Ég tek þetta algjörlega á mig og þakka bara fyrir að ekki fór verr.
Ég vill líka taka það fram að við vorum ekki á vegum ÍsAlp heldur á eigin vegum. Hvorugt okkar er skráð í ÍsAlp.
Bestu kveðjur,
Þórður Sævarsson
Segðu þína skoðun
Þú verður að vera
skráður inn eða þarft að
skrá þig til að taka þátt í umræðunni.