Borði

Festival 2011

Síðbúið festival 2011

Ísfestivalið átti að vera á Bíldudal í febrúar en vegna veðurs og aðstæðna var ekki hægt að halda það þar. Nú hinsvegar um miðjan mars kom frostakafli á landinu og kviknuðu þá vonarneistar um að nú væri hægt að halda festivalið. Hinsvegar streymdi lægðunum yfir landið og gerði okkur erfitt fyrir að meta veðurútlit.

Eftir miklar veðurspárvaktanir var ákveðið að halda klifurdag í stað helgarferðar svo eitthvað yrði af viðburðinum og héldu 14 klifrarar upp í Múlafjall á laugardaginn. Í frosti og roki voru klifraðar nokkrar leiðir. Um hádegi sneri hinsvegar stór hluti hópsins niður á leið og fóru nokkrir í Búahamra þar sem mun betra veður var.

Einhverjir ætluðu einnig í skíðaferð í Botnssúlur en vegna veðurs var skíðað á Skálafelli í staðinn.

Ath. að á hópmyndina vantar Freysa, Styrmi og Gumma T.

 

Segðu þína skoðun
Þú verður að vera skráður inn eða þarft að skrá þig til að taka þátt í umræðunni.