Telemarkfestivali 2010

Nú um liðna helgi var haldið vel heppnað Telemarkfestival í Hlíðarfjalli en þetta var í 10 skipti sem það fer fram.

Þrátt fyrir að snjóalög hafi stundum verið þykkari og veðurspá girnilegri þá var síst minni stemmning þetta árið en fyrri ár.
Á föstudagskvöldinu var skíðað í fljóðljósum en Hlíðarfjallsmenn voru svo elskulegir að hafa opið lengur fyrir okkur.

Á laugardagsmorgninum var hópur vaskra manna mættur upp í fjall til að búa til braut. Fremstur meðal jafningja var þar Karl Ingólfsson sem fór fram á að nýstárlegar aðferðir væru notaðar við lagninguna.
Um hádegisbil fóru prúðbúnir gestir Telemarkfestivalsins að streyma upp í fjall.
Var það mál manna að metnaðurinn í búningum aukist með hverju árinu og mátti sjá hópa af fegurðardrottningum, drakúla, trúða, týrólabúa auk hins mjólkurhristingsdrekkandi Dude, þela um brekkurnar í Hlíðarfjalli.

Samhliðasvigkeppnin hófst kl. 13 og kepptu hátt í 40 manns. Ræsir var Valgeir Brekkusnigill en Karl sá um að para saman keppendur í brautina. Eftir æsispennandi keppni í hálli brautinni stóðu uppi sem sigurvegarar hjónaleysin Maggý og Góli. Eru þau vel að titlinum komin enda án efa með einbeittustu telemörkurum landsins.

Glerár-búar buðu í aprés ski stemmningu að loknum vel lukkuðum skíðadegi og mátti þar sjá fjölda fólks dilla sér við ekta austurrískt aprés ski popp að hætti DJ Ötzi. Saltkringlur og mjöður af ýmsu tagi runnu ljúflega niður.

Ekki gafst langur tími til afslöppunar eftir aprés ski þar sem um kvöldið fór fram Telemarkhóf í Íslandsbænum á Hrafnagili. Þrátt fyrir mikla hörku og eftirfylgni í skráningum fyrir veisluna bættust við 20 manns á lokasprettinum. Um 100 manns mættu því í veisluna og má því segja að setið hafi verið ansi þétt í litla torfbænum.
Skíðafólkið hafði ekkert á móti því, eins og einhver sagði þá er þetta fólk flest vant því að hýrast í litlum blautum fjallaskálum og tjöldum. Þessi nánd jók svo sannarlega á stemmningunni og að loknu borðhaldi og eftirminnilegri verðlaunaafhendingu brast á með dansi.

Þessi viðburður er sannarlega einstakur og fjöldi fólks úr öllum áttum leggur hönd á plóginn við að gera helgina sem magnaðasta.
Takk fyrir frábæra helgi og sjáumst á næsta ári.

Yfirlit yfir úrslit og verðlaunahafa á Telemarkfestivali 2010

Úrslit í samhliðasvigi:

Karlar:

1. sæti - Guðmundur Óli Gunnarsson

2. sæti - Tómas Sigursteinsson

3. sæti - Steinar Þorbjörnsson

Konur:

1. sæti - Magnea Magnúsdóttir

2. sæti - Ponta

3. sæti - Ragna Sif

Aðrar viðurkenningar og verðlaun:

Maður og kona mótsins: Góli og Maggý - fyrsta par sem vinnur samhliðasvigið

Drottning mótsins: Óliver hin fagra

Uppbótarmaður undafarinna ára: Böbbi

Búningaverðlaun: Akureyringar - The Big Lebowski (fengu sundkort í sundlaug Garðabæjar, já það er sundlaug í Garðabæ enda voru þau mjög skítug) + farandskíði.

Öldungur mótsins: Magnús Dan Bárðarson – komst í 3. umferð.

Öldungur kvenna: Íris Marelsdóttir

Bestu aukahlutirnir og besta klapplið: VÍN (Baðkort í Jarðböðin, líka mjög skítugir allir saman)

Mesta svigrúm til bætingar: Sigrún Helga Gunnlaugsdóttir – datt út í fyrstu beygju

Heiðursverðlaun: Bassi fékk gullpening enda 10 ára afmæli mótsins í ár.

Traustasta mótstjórnin: Bassi og Valli (fengu rómantíska siglingu á Jökulsá Austari og flísteppi til að kúra sig saman eftirá)

Mesta afhroð: Nashyrningar – féllu allir út í fyrstu umferð (fengu vax til að renna betur á næsta ári).

Tilþrifaverðlaun kvenna: Ponta sem henti sér á andstæðing sinn í úrslitum og reyndi að draga hana með sér í fallinu.

Verlaun bestu tilþrif í karlaflokki - Gunnar Sverrir Ragnars Akureyringur – renndi sér talandi í NMT síma í keppninni.

Besti nýliðinn í kvennaflokki: Björk

Besti nýliðinn í karlaflokki: - Maggi Smári

Besta verðlaunaafhendingin - Team Garðabær


Stuðningsaðilar:


Cintamani center Laugavegi 11

Arctic rafting

Nova

Sundlaug Garðabæjar

Útilíf

66N

Cintamani

Jarðböðin við Mývatn

Intersport

KTM

Everest

Bláfjöll

Skíðaþjónustan Akureyri

Fjallakofinn

tele2010_resized
tele2010_048_resizedtele2010_041_resizedtele2010_092_cropped_resized