Ísfestival 2010 í Öræfum


Árlegt Ísfestival ÍSALP var haldið í Öræfunum 25. - 27. febrúar.
Alls komu um 23 gestir á hátíðina og þónokkrar áður óklifnar ísleiðir voru klifnar.

Á föstudeginum lögðu hópar af stað frá höfuðstaðnum í austurátt. Áfangastaðurinn var Skaftafell. Fréttir að austan lofuðu góðum ís en hátíðinni hafði þurft að fresta um eina viku vegna lélegrar ísmyndunar.
Engu að síður var nú á leiðinni flokkur manna og kvenna til að skoða sig um í faðmi fjallanna og leita að verðugum viðfangsefnum.

Könnunarferðir á leiðinni á festival

Tveir hópar lögðu af stað snemma á föstudeginum og hugðust skoða sig um á leiðinni. Klífa á stöðum þar sem lítil eða jafnvel engin umferð klifrara hefði áður verið. Hópurinn sem fyrr lagði af stað úr bænum gerði sér ferð upp að Fjaðrárgljúfri en fann þar akkúrat ekki neinn ís. Á leiðinni þangað sáu þau þó ýmislegt og eftir að hafa snúið frá gljúfrinu gerðu þau sér ferð tilbaka og klifu einar þrjár nýjar leiðir áður en þau tóku stefnuna austur í Skaftafell þar sem boðið var upp á gistingu að þessu sinni.
Annar hópur staldraði við í Hörgsárgljúfri og leitaði þar að ís. Voru ísheimtur ekki jafn góðar og þær hefðu mögulega getað orðið eftir lengri kuldakafla, þó voru þar tvær leiðir frumfarnar.

Laugardagur til lukku

Að morgni laugardags kom Einar Öræfingur í heimsókn með fartölvuna sína, fulla af fallegum ísmyndum. Einar hafði veitt okkur ómetanlega aðstoð
við skipulagningu hátíðarinnar og kom nú í hús með ferskar upplýsingar um veður, færð og aðstæður. Eftir að hafa meðtekið upplýsingarnarnar frá Einari fóru menn að mynda sér skoðanir á því hvert best væri að halda.
Það er að segja þeir sem ekki voru nú þegar farnir út í könnunarleiðangur. Úr varð að klifurteymi röðuðu sér upp á eftirfarandi stöðum:

Morsárdalur. Áður ókannað svæði sem geymir mikinn fjölda ísleiða.
Grænafjallsgljúfur.  Klifrarar þurftu frá að hverfa vegna grjóthruns sem kom niður íshaftið sem fara þarf um til að komast inn í sjálft gljúfrið.
Rótafjallsgljúfur. Áður ókannað svæði. Tvær ísleiðir sjást frá vegi og voru þær einu sem voru í klifranlegu formi að svo stöddu. Rúmlega tveggja tíma gangur inn að leiðunum.
Svínafell. Heldur þunnt og sólbakað en vestarlega í fjallinu voru byrjendavænar ísrennur sem kíkt var á. Annað teymið endaði á hlaupum frá fjallinu vegna grjóthruns en hitt náði að klifra nýja leið.
Einnig var klifrað í hömrunum við Svartafoss, í gljúfri við Hnappavelli og ofan við Hof þennan dag.
Þegar niður var komið var efnt til grillveislu í boði ÍFLM og ölluskolað niður með viðeigandi drykk. Þegar hópurinn hafði sammælst um að meltingin væri nógu vel á veg komin var ákveðið að menn og konur skildu fara í hópbað í busllaug nokkurri sem fær vatn úr borholu nokkra metra frá húsunum sem gist var í. Myndarlegur pottur sem hitnaði jafnt og þétt eftir því sem á leið og að lokum náði hann líklega hitastigi sem sæmir venjulegum heitum potti.

Sunnudagur til sælu

Vel nærður, úthvíldur og hreinn gekk hópurinn frá húsakynnum sínum og bjó sig til klifurs á ný. Einna mesta athygli hlaut hið nýja klifursvæði í Morsárdal en einnig var klifið við Svartafoss og við Hnappavelli.

Semsagt, enn einu vel lukkuðu festivalinu lokið og undirbúningur fyrir það næsta hafinn. Vonandi sjáumst við sem flest að ári.

Festivalsnefndin