Skrifað af: God Godson
Þriðjudagur, 03. janúar 2012 17:58
Undanfarin ár hefur verið hefð að efna til ljósmyndasamkeppni Isalp samhliða fjallamyndahátíðinni Banff. Fyrir síðasta Banff var ákveðið að auka veg þessarar keppni og gefa þeim sem eru að búa til fjalla myndbönd færi á að taka þátt.
Við höfum fengið til liðs við okkur þá Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndara og Andra í spenna.is til að vera í dómnefndum ásamt því koma á verðlaunakvöldið og spjalla um ljósmyndun og myndbandagerð. Einnig verður fulltrúi úr stjórn Isalp í dómnefnd.
Verðlaun í keppninni í ár eru ekki af verri endanum:
Besta myndbandið: Contour HD myndatökuvél í boði
spenna.is
Besta myndin: Canon PowerShot D10 í boði
NýherjaBesta mynd í hverjum flokki: Glæsileg verðlaun í boði
FjallakofansEinnig verða bestu myndirnar birtar í næsta ársriti Isalp og besta myndbandið sýnt á hvíta tjaldinu á Banff hátíðinni.
Skilafrestur er til miðnættis 22. Janúar 2012 en verðlauna afhending fer fram í húsakynnum Isalp föstudaginn 27 janúar og um leið gerum við okkur glaðan dag.
Reglur keppninnar: Ljósmyndir:
Keppt er í fjórum flokkum auk þess sem verðlaun verða veitt fyrir bestu myndina.
- Skíði og bretti
- Ís- og alpaklifur
- Klettaklifur
- Mannlíf á fjöllum
- Upplausn myndar er frjáls en hafa skal í huga að mynd fer á prent og því er gott að upplausn sé að minnsta kosti 2481px X 1749px.
- Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum, teikna eða bæta inn texta á myndina.
- Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Mælt er með að þátttakendur taki fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni.
- Þátttakandi tiltekur í hvaða flokk myndin á að keppa.
- Hámarksfjöldi mynda á hvern þátttakanda eru 3 myndir í hverjum flokki, samtals 9 myndir sé tekið þátt í öllum flokkum.
- Myndin skal vera tekin árunum 2010-2011
- Myndir skulu sendast á veffangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hver póstur sem fer á póstfangið má ekki innihalda stærra viðhengi en 10 MB. Keppendur fá staðfestingu á móttöku mynda áður en frestur rennur út.
Myndbönd: -Myndbandið skal hafa verið tekið upp á árunum 2009-2011 og skal snúast um fjallamennsku, skíðun eða klifur.
-Myndböndunum skal skila sem .mov eða .avi
-Upplausn skal vera að lámarki 640 x 480, ákjósanlegast er 1920 x 1080 (HD)
-Myndefni skal vera eign þáttakenda eða hafa leyfi eiganda þess.
-Hámarksfjöldi myndbanda á hvern þáttakanda eru þrjú.
-Myndbönd skal senda inn á http://www.spenna.is/sendainn

Segðu þína skoðun
Þú verður að vera
skráður inn eða þarft að
skrá þig til að taka þátt í umræðunni.