Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Flottar skíðamyndir frá Fróni

Flottar skíðamyndir frá Fróni fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10421

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Þar sem að það er nú farið að grána í fjöll að þá datt mér í hug að Ísalparar hefðu gaman af smá upphitun fyrir veturinn.........
Smellið á hlekkinn til að sjá brot af því besta frá 2010 vertíð Arctic Heli Skiing á Tröllaskaganum. Þarna er að finna myndir frá þremur atvinnu snillingum t.d fjallahirðljósmyndara okkar honum Guðmundi Tómassyni.
Njótið vel og farið svo að brýna kantana því veturinn er á næsta leiti....

Best of Arctic Heli Skiing 2010
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Re:Flottar skíðamyndir frá Fróni fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10422

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Sweeeeet!!! Það er farið að sjást í hvítt á toppi fjallanna hérna í Skagafirði. Er farinn að dansa snjódansinn fyrir megafreshhh vetri ;)
Kv.Öddi Hólabóndi
Ps : er að fara kaupa mér splitboard. Hefur einhver reynslu af þeim hér á Fróni?

Re:Flottar skíðamyndir frá Fróni fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10425

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Það hefur verið að falla ansi blautur snjór niður hér sunnan heiða í allan dag...vonum bara að þetta verðir kaldur vetur með miklum snjó.

En varðandi split að þá hefur verið ritað ansi mikið um það hér á síðunni....ef maður reynir að súmmera það upp þá virka þessi bretti miklu betur en björtustu menn þorðu að vona, bara að skella sér á einn grip. Ég á ennþá til eitt Voile split kit (vantar bara split bretti frá Burton eða Voile og snjóbrettabindingar til að græjan virki ef einhver vill bjóða í það, það er ónotað).

Eini gallinn við þetta eru mjúku brettaskórnir, nema þú ætlir þér að vera á stífum skóm. Mjúkir skór eru bestir á niðurleiðinni en geta verið til trafala þegar þú þarft að sparka spor í harðan snjó, en hver rennir sér svosem í hörðum snjó og ef svo er þá hefur maður bara einn skíðavitleysinginn með sér til að fara á undan...

Gimp

Re:Flottar skíðamyndir frá Fróni fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10428

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Takk fyrir thetta Himmi. Er einmitt buinn ad vera spa i hvernig bindinga/sko system eg vill hafa. Bylting ad thurfa ekki ad bera brettid upp a bakinu til thess ad komast i goda stuffid ;)
Kv.Oddi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek