Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Svarti turninn í Búahömrum

Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8811

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Frá því í mars höfum við kumpánarnir unnið að nýrri klettaleið í Búahömrum. Skemmst er frá því að segja að eftir mikið streð og töluverða hreinsunarvinnu er leiðin tilbúin, klifruð, og klár í neytendapakkningar:


Svarti turninn - 5.8


Staðsetning:

Búahamrar í Esju, um 100 metrum vestan við Rauða turninn. Sjá leiðarvísi (meðfylgjandi hlekkur).

F.F.:

6/7/´09 - Andri Bjarnason, Freyr Ingi Björnsson, Sveinn Friðrik Sveinsson (Sissi).

Lýsing leiðar:

1. spönn: 5.7 - 30 m.

2. spönn: 5.8 - 15 m.

3. spönn: 5.3 - 50 m (tengispönn, brekka með stuttu hafti).

4. spönn: 5.8 - 10 m.

Fyrsta spönn er löng og brött á köflum, erfiðust fyrstu 15 metrana. 9 boltar og tveggja-bolta megintrygging.

Önnur spönn liggur upp einskonar berggang og endar í víðum strompi og þar er krúxið. 5 boltar og tveggja-bolta megintrygging.

Þriðja spönn liggur upp grasbrekku sem leiðir að stuttu og léttu klettahafti með einum bolta. Þar fyrir ofan er stutt brekka upp í eins-bolta megintryggingu.

Fjórða spönn liggur upp víða sprungu (off-width). Á einum stað þrengist sprungan og verður þar mjög hentug fyrir meðalstóran hnefa. 4 boltar og tveggja-bolta megintrygging.

Niðurleið:

Við mælum eindregið með því að klifrarar gangi niður. Best er að fara nokkra metra til vesturs og þar niður gil, fylgja svo klettaveggnum þar til komið er að þröngu og bröttu gili. Sjá leiðarvísi.

Búnaður:

60 metra lína + 11 tvistar.

ATH!!

Við erum búnir að hreinsa leiðina nokkuð vel en þó geta leynst staðir þar sem bergið er laust. Því er nauðsynlegt að nota hjálm. Varast skal að klifra út úr leið í fyrstu spönn.

Njótið vel! Það væri gaman að heyra frá þeim sem klifra leiðina, t.d. athugasemdir um gráðun o.s.frv.

Leiðarvísir og myndir: www.picasaweb.com/andribjarnason

Kveðja,

Andri, Freysi og Sissi.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8812

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Þetta er sérdeilis glæsilegt.
Var búinn að heyra af þessu og beið spenntur eftir frumsýningunni. Kíkir á þetta við tækifæri.

Synd að þessi póstur kom ekki í gær því við Skabbi vorum Búahömrum seint í gærkvöldi og sáum djásnið en erum svo miklir heiðursmenn að ekki stóð til að snáka FFið. Hefði verið flott að teymi endurtæki leiðina sama dag og hún var FF.

Við fórum aftur á móti í Rauða turninn og fórum þar í nokkurra klukkutíma endurreisnarstarf því eins og kom fram í pistli mínum í síðustu viku voru fjölmargir boltar og efri stans komin í vafasamt ástand.
Við skiptum því um tvo bolta í krúxinu í fyrri spönn (þeir voru grútmorknir) auk þess að setja betra sigakkeri (rústfrían hring + keðju) á góðu boltana á stansinum. Tókum ónýta boltann úr stansinum líka.
Í seinni spönn var allt orðið morkið og var því skipt um fjóra bolta í neðri helmingi auk þess sem sigakkerið uppi á klöppinni var endurnýjað alveg (well ekki alveg kannski - glænýir boltar en sighringir og augu sem við tókum úr neðri stansinum). Einnig var einum bolta bætt við á létta slabbinu fyrir lokahaftið öryggisins vegna, því bráður bani hlýst ef dottið er þar (10m niður í boltann og oft múkki á syllunni). Nú þarf því ekki lengur neitt dót til að fara þarna um gleðinnar dyr.
NB. Það er ennþá gott runout milli bolta 2 og 3 í þessari spönn og vildum við ekki skemma það ævintýri enda er klifrið létt á þeim kafla. Farið bara varlega.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8813

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Tær snilld, vonandi ratar maður í þetta klifur fyrr en síðar.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8814

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Hér er svo mynd af dótinu sem var hreinsað var úr Rauða turninum en í staðinn voru settir 9stk ferskir boltar, 7stk augu og eitt rústfrítt akkeri.



Ég vona að enginn sakni fleygsins sem tekinn var hjá fyrsta bolta. Ef menn vilja vitja hans og/eða negla hann inn aftur, þá hafið þið samband... :)
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8817

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan


Þetta er kúl strákar. Eins og Siggi sagði þá (b)röltum við aðeins um svæðið og töldum að þar rúmast líklega nokkrar leiðir í viðbót.

Ég á allavega hot date í Turnunum Tveim á morgun, læt vita um stemminguna eftirá.

Allez!

Skabbi
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8824

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Fékk að fjóta með Skarphéðni og Hrönn sem sérlegur hirðljósmyndari.
Þetta er hin besta skemtun.

http://picasaweb.google.com/pallsveins

kv.
Palli
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8825

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan


Takk fyrir daginn Palli.

Svarti Turninn olli engum vonbrigðum, prýðileg skemmtun. Fórum okkur að engu óðslega við klifrið, vorum rétt um tvo tíma að klára.

Tek aftur að ofan fyrir piltunum sem nenntu að hreinsa leiðina og bolta.

Allez!

Skabbi

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8827

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Vá, þegar Skabbi sagðist hafa átt hot date í Turninum grunaði mig ekki að það væri grískur guð ;)

Gott að þetta er skemmtilegt, þið hafið sennilega samið betur við Hálfdán fyrir hönd veðurstofunnar en við, lítur út fyrir að hafa verið fantagott veður á ykkur.

Fínar myndir líka, en Palli þú þarft að temja þér að smella af einni svokallaðri KSASM eða "klassískri sjálfsmynd af sjálfum mér", sem svo er nefnd eftir myndsmíðum lífskúnstnersins Óla Ragga. Alltaf gaman að sjá smettið á snillingum.

Bara gaman!

Sissi
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8828

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Nei andskotinn, Sissi. Nú hefurðu uppljóstrað einu skemmtilegasta leyndarmáli fjallabransans, þ.e. merkingu K.S.A.S.M. Nú þurfum við að bíða þar til einhver snilld hrekkur af vörum Óla Ragga – og hann býr í Svíþjóð!

Það er gaman að ykkur líkar leiðin. Finnst ykkur spannirnar hæfilega gráðaðar?

Kveðja,

AB
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8832

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Hæ, ég og Óli Hrafn skelltum okkur í Svarta Turninn í blíðunni. Hin besta skemmtun, takk fyrir að hafa sett þessa leið upp strákar.

Mjög sáttur við gráðurnar og vel boltað ... fyrsta spönnin alveg boltuð í hönk, hefði kannski verið meira gaman að sleppa 2-3 svona til að auka enn meira á gleðina ... :)

Kveðja,
Gulli
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan #8841

Skrifað fyrir 2 árum, 7 mánuðum síðan
Virkilega skemmitileg leið og svo vel boltuð að hrein unun er að klippa í ... Þið eigið mikinn heiður skilinn fyrir þetta framtak (líka fyrir endurboltunina í Rauða turninum).

Skúli Magg

P.s. Mér finnst gráðunin stemma miðað við íslenska yosemite-kerfið (sem er náttúrulega tómt rugl og bull).
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8847

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Hæ,
Takk fyrir mig herrar.
Ekki taka of mikið mark á Gulla, þetta er fínt boltað ef eitthvað þá hefði mátt bolta smá stiga í spönn tvö svo ég kæmist upp án þess að fara að gráta.

Myndir úr ferð picasaweb.google.com/olikrummi/SvartiTurninn#

Kv.
Óli Hrafn
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8848

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Við skelltum okkur tveir (Gaui og Atli) í þessa snilldar leið fyrripartinn í dag.

Spenningurinn og gleðin var svo mikil að ég spændi fram hjá fyrstu megintryggingunni og endaði með massa "rope-drag" og tvistalaus í "annari" spönninni.

Mér fannst gráðurnar vera við hæfi miðað við aðrar leiðir á íslandi. Leiðin er vel boltuð!

Snilldar framtak, takk fyrir okkur
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8849

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Við Arnar skelltum okkur í Svarta turninn um helgina og skemmtum okkur vel ;) Gott framtak. Skemmtilegt klifur. Vel boltað. Gráðurnar við hæfi. Sem sagt bara eintóm hamingja!

kveðja,
Berglind
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8850

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Það gleður mig ósegjanlega hve margir eru ánægðir með Svarta turninn.

Við Freysi klifum Rauða turninn síðasta laugardag. Gott hjá Sigga og Skabba að endurbolta. Þarft verk. Og mikið óskaplega er neðri spönnin alltaf jafn erfið! Svona eru þessar blessuðu 5.9-ur; svo miklu erfiðari en 5.8-ur en lítið auðveldari en 5.10-ur.

Kveðja,

AB
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8852

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Eftir hádegi í dag í bongóblíðu renndum við Geiri í Svarta turninn. Snilldar leið í alla staði, fyrsta spönnin stóð samt uppúr en fyrsti stansinn er þó orðinn vel útspýjaður eftir múkkann sem býr þar við hliðiná. Frábært framtak takk fyrir okkur.

Dóri
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8853

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Flott leið, vel boltuð og hið skemmtilegasta klifur. Takk fyrir uppsetninguna.
Gráðunin er vist fortíðarvandamál sem erfitt er að losa sig út úr. Væri klifrið í öðru landi mætti gráða spannirnar 5c, 6a, tengispönn og 6a og væri leiðin þá ekki ofgráðuð sem 5.8, 5.9 tengispönn og 5.9.
Núverandi gráðun samræmis "íslenska-yosemite gráðukerfinu" ágætlega en auðvitað er þetta ekki æskileg staða að undirgráða leiðir til þess að halda inbyrðis samræmi á mili klifurleiða hérlendis.

Leifur Örn Svavarsson
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8854

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Ofsalega er mikið af skemmtilegu fólki að klifra í Svarta turninum. Æði. Það hefði nú verið gaman að vera lítill fugl (þá ekki múkki) nálægt Geira og Dóra, alveg er ég sannfærður um að eitthvað epískt hefur farið þeim á milli í dag.

Friður,
Sissi
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8855

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Hah, Leifur var ekki búinn að pósta þegar ég skrifaði þetta og ég verð bara að taka fram að eflaust hefði maður fengið stórskemmtilegt efni þar líka, svona fyrir þá sem finnst gaman að gagnálykta :)

S
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8856

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
vá hefur enginn lent í því að koma að leiðinni á sama tíma og þurft að slást til að útkljá hver fær að klifra :)

Frábært!
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8857

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Jú, Björk, í gær handrotaði ég tvo túrista sem ætluðu í leiðina á undan mér og faldi þá svo í háa grasinu undir leiðinni. Held að þeir hafi verið Hollendingar eða Belgar.

AB
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8868

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Ég og Raggi fórum svarta turninn í kvöldblíðu gærdagsins. Notalega stund áttum við þar ásamt þeim 4 öðrum sem voru í leiðinni þegar við okkur bar að.
Ekki náðum við þó að greina hverjir voru þar á ferð en sáum á því hvar þeir lögðu bíl sínum að bestu aðkomu hefur kannski ekki verið nægilega vel lýst.

Aðkoma: Beygið inn á bílastæði við Esjurætur að Mógilsá (þar sem gengið er af stað á Esjuna).
Í stað þess að keyra inn á malbikað bílastæðið er strax beygt útaf til vinstri og inn á malarslóða sem liggur í fyrstu upp í hlíðina en sveigir fljótlega og verður samsíða þjóðveginum. Þessi slóði er keyrður alla leið þangað til maður er staðsettur ofan við malarvinnsluna (flatus lifir). Þar er mál til komið að leggja bíl sínum og fara fótgangandi í átt að klettunum. Sama leið er farin til baka.

Góðar stundir,

Freysi
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8869

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Já varst þú þarna líka í gærkvöldi Freysi, en við vorum 4 félagar þarna á ferð, Ég, Óðinn, Kári og Óli. Myndir koma síðar þar sem ég er tölvulaus til myndvinnslu sem stendur. Frábær leið, miklu skemmtilegri en ég átti von á og þið eruð algjörir heiðursmenn fyrir að setja þetta svona vel upp og græjja fyrir okkur hina, takk kærlega fyrir okkur.

Get kannski gefið smá teaser af myndum, en hér er mynd af öðrum "leiðarverðinum": www.flickr.com/photos/gummistori/3733679630/
hendi inn klifurmyndum í vikunni, skal láta ykkur vita.

kv. Gummi St.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8870

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Fór í Svarta turninn í dag með Gunna Magg. Virkilega skemmtileg leið, vel boltuð og frábært framtak. Unginn við fyrsta stans var bara spakur og ældi ekkert. Í klettunum vestan við niðurgöngugilið tók ég eftir bolta með frönskum lás í miðjum vegg og kopperhead í áberandi sprungu neðan við boltann. Virtist þetta vera komið nokkuð til ára sinna. Er þetta eitthvað project sem menn gáfust upp með? Sá veggur bíður upp á nokkrar leiðir.

Kv. Ági
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8872

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Vel á minnst Ági, tók líka eftir þessu og töluvert neðar á sama stað sáum við líka hnetu í veggnum.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8873

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Sagan segir að þetta sé hálfkláruð stigaklifurleið eftir Gvend dúllara.

AB
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8874

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Guðmundur Freyr Jónsson wrote:
Já varst þú þarna líka í gærkvöldi Freysi, en við vorum 4 félagar þarna á ferð, Ég, Óðinn, Kári og Óli. Myndir koma síðar þar sem ég er tölvulaus til myndvinnslu sem stendur. Frábær leið, miklu skemmtilegri en ég átti von á og þið eruð algjörir heiðursmenn fyrir að setja þetta svona vel upp og græjja fyrir okkur hina, takk kærlega fyrir okkur.

Get kannski gefið smá teaser af myndum, en hér er mynd af öðrum "leiðarverðinum": www.flickr.com/photos/gummistori/3733679630/
hendi inn klifurmyndum í vikunni, skal láta ykkur vita.

kv. Gummi St.


Þessi mynd af "leiðarverðinum" er alveg einstök, ótrúlega flott augnablik sem þú fangaðir þarna.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8875

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Hæbb, ég dúndraði myndaseríu inná www.climbing.is frá ferðinni þarna upp ef þið hafið áhuga. Einnig stærri útgáfa af ungakvikindinu hehe...

geggjuð leið, þrususkemmtileg, vel boltuð og bara thumbs up !
Takk fyrir mig

Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8878

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Ég og Atli félagi minn drösluðum okkur upp í gærkveldi, þurftum að bíða smá meðan að tveir félagar hentu sér upp og svo fórum við af stað. Þetta er mjög skemmtileg leið en ég hef grun um að gráðan gæti hugsanlega verið aðeins of lág á leiðunum.
Allavega miðað við gráður á öðrum svæðum sem ég hef verið að klifra í Munnkaþverá og Valshamar og Boulder í Fountain Bleu (frakkaland er að vísu allt annað kerfi :)

En ég ÞAkka hrikalega gott framtak og sýnist mér þetta stefna í leið ársinns og um leið framtak ársinns að endurvinna boltana

Spurning: er til einhversstaðar klettaklifursleiðarsvísir fyrir dótaleiðirnar þarna.... sá helling af flottum leiðum, í bakgarði Reykjavíkursþorps

Kv
Dauðarokkarinn
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8883

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Fyrir rúmri viku fór ég "misheppnaða" leið upp "svarta turninn" með Himma þar sem kom í ljós að við fórum upp rauða turninn, í stað þess svarta... Passlega kjánalegt það en ég græddi þó klifur upp Rauða turnin sem ég hefði annars beðið með.

En nú í morgun tókst mér loks að hitta á réttu leiðina með Ödda og hafði virkilega gaman af turninum svarta. Það kom þó á óvart hvað hún var í raun auðveld þar sem að þessar fimm-áttur eru ívið auðveldari en fimm-átturnar á Hnappavöllum. Þó er 5.7 og 5.8 líklega lýsandi miðað við annað á Íslandi en svo undirgráðuð ef borið saman við útlöndin...

Önnur og fjórða spönn voru prýðisgóð skemmtun og sú fyrsta fín upphitun, hafði þó ekkert sérstakt skemmtanagildi.

Þakka vel fyrir nýja leið og endurboltun á Rauða turninum, báðar leiðir þrælfínar en ef ég ætti að gera upp á milli þá held ég að Rauði turninn sé skemmtilegri, enda ívið erfiðari.

P.S. ég fann BD tvist og sling með tveimur ólæstum karabínum í fyrsta stans. Ef einhver saknar þeirra þá getur eigandinn hringt í 824-5846

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8884

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Jebbzy þetta var megafreshhh mánudagsmorgun ;) takk fyrir mig !
Kv. Öddi

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8885

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Hæ,

Heyriði, ég fór svarta turninn aftur í kvöld og lagði þá bílnum beint undir leiðinni og sá að það er búið að klippa í sundur girðinguna sem liggur þarna á milli, ég vona að ef þetta er eftir einhvern úr okkar samfélagi að þetta hafi verið gert í samráði við landeigendur en ekki hreint skemmdarverk !

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan #8887

Skrifað fyrir 2 árum, 6 mánuðum síðan
Sammála Gumma. Agalegt að sjá þetta og mun líta illa út fyrir klifurmenninguna, hvort sem klifrari hafi gert þetta eða ekki.

Spurning hvort einhver taki sig til og hnýti girðinguna aftur saman, og jafnvel með sniðugu hnútavirki þannig að hægt sé að losa og herða eftir þörfum?

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan #10389

Skrifað fyrir 1 ári, 6 mánuðum síðan
Loksins gaf ég mér tíma til að fara í svarta turninn í blíðskaparveðri í dag. Mjög skemmtileg leið, mér fannst 2. spönnin skemmtilegust.
Takk fyrir flotta leið, en er ekki slatta pótensíjónal þarna fyrir fleiri leiðir?

kv. Smári

Re:Svarti turninn í Búahömrum fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10420

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Ég og Finni létum okkur hafa það að klifra þann Svarta í gær og skemmtum okkur konunglega. Helvíti gaman að komast loks í boltað fjölspanna klettaklifur.

Miðað við þær 5.7 og 5.8 leiðir sem ég hef klifrað í Munkanum finst mér þetta full hátt gráðað en á hinn bóginn er þetta lágt gráðað miðað við það sem ég var að klifra á Ítalíu fyrir nokkrum dögum.

Annars vill ég bara vara menn við að þó þetta sé boltuð og hreinsuð leið er töluvert af lausu grjóti þarna. Ég fann á nokkrum stöðum álitleg grip og fótsstig sem við nánari athugun reyndust laus og einu sinni molnaði grip í höndunum á mér.


Í það heila stórskemtilegt klifur.

kv
Jón "norðan" Heiðar
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.67 sek