Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hrútsfjall

Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10430

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Sumir eru í betra formi en aðrir. Alla jafna tekur það ÍFLM hópa um 12 - 14 tíma að klífa Hrútfjallstinda eftir Hafrafellinu. En það er hægt að gera það á styttri tíma en það. Geiri fór um daginn á 9:10 upp og niður með þrjá kúnna.
Í morgun bætti hans svo um betur og fór á 4:20 án kúnna - skilst að uppferðin ein hafi verið ca. 2:40.

Hlakka til að sjá hvað hann gerir í haust þegar færið á Hnúkinn fer að batna aftur.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10433

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Veit nú ekkert hvaða Geiri þetta er. Rámar í einhvern Hvell-Geira. Var það ekki einhver teiknimyndafígura?

Kv. Árni Alf.

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10434

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Geiri er náttúrulega undrabarn. Þegar hann fór þetta á 4:20 þá var það í 4 skipptið sem hann fór upp á viku.

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10435

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Geiri Geiri Skaftafell Kallar :
Geiri svarar:
Hver var upptíminn spyr Ívar:
Tveir tímar og Fjörtíu og fimm mínútur

Þar höfum við það. Hlakka svo til að sjá hvað gerist næst.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10436

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Varla fær maðurinn borguð full laun! Rétt nær dagvinnutíma í þessum ferðum. Sleppa kúnnarnir billegar úr svona ferð? Man bara að ferð á Hnjúkinn tók minnst 14 tíma oftar 16. Kannski fékk ég bara feitustu og fúnustu kúnnana. Eða var ég dragbíturinn? Bara svona vangaveltur hér í Hvalfirðinum.

Kv. Árni Alf.

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10437

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Eitthvað hljóta aðstæður að hafa breyst á skömmum tíma ef það er óhætt að fara þetta sóló. Er það tilfellið? Rétt um miðjan ágúst var maður með hjartað í buxunum að silast yfir snjóbrýrnar sem ekki voru beisnar.

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10438

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Eitthvað rámar mig í að stofnandi þessa þráðar hafi farið Hnúkinn á örfáum klukkutímum og það á hlaupum svo að ekki var þetta gert gangandi allavega :)

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10439

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Geiri er náttúrulega úr járni!

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10441

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Hvaða Geiri er þetta? Væri hægt að fá nafn og kannski mynd? Fjórar lappir og tálkn gætu kannski skýrt málið.

Kv. Árni sem segir dojjojojojó

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10442

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Geiri? Lattelepjandi lopalalli af lélegustu sort! Sést treglega með bakpoka. Einbeittur með afbrigðum og útsjónarsamari en hann er hár! Þjáist merkilega lítið af vægri ofvirkni sem hellist þó yfir hann í köstum. Á sér verndarengil sem fórnaði öllu til að hjálpa Geira en til þess hefur víst ekki komið.
Þegar ég renni yfir myndasafnið kemur í ljós að Geiri er hreyfður á flestum myndum ... nema einni enda hangir hann þar allslaus (brodda- og axarlaus) í spotta ofan í sprungu!
Hér eru svo nokkrar myndir Árni minn til að skýra myndina.
Gott ef hann líkist þér ekki bæði til andans og lima!

picasaweb.google.com/lh/photo/k1VR2rl3ba...zerg?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/4hAnrNg70Y...haJQ?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/9G2mrIMqhf...dXng?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/qj1cT9LvK6...WPPQ?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/_A86sDiR1w...Bj1Q?feat=directlink

picasaweb.google.com/lh/photo/_A86sDiR1w...Bj1Q?feat=directlink

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10443

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Respect Geiri, annars er ég með klifurtútturnar þínar, hringdu og ég skal hleypa þér inn, ekki skrúfa neitt í sundur. (Síðan les Dóri þetta væntanlega og sendir konunni hans Geira þetta með bréfdúfu. Hún kemur síðan skilaboðunum til skila).

Og Árni, ég er viss um að Geiri væri príma makker fyrir þig í eitthvað lopapeysu- gúmmístígvéla- krapa- gönguskíðasöffer. Hann fílar svona rugl líka.

Sissi

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10444

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Hér er ein mynd til biðbótar af kappanum:

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10445

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Hann er ógurlegur:
retro.smugmug.com/Ice-climbing/Hvannadalshnjúkur-29-ma%C3%AD/12856026_yufqi#927868006_PVfQa

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10446

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Þetta er magnaður tími. Ætla rétt að vona að hann hafi tekið 2,5 tíma ferð eftir hádegi úr því hann tók bara svona 4 tíma ferð um morguninn.

Legg til að Geiri fái þessa rauðhærðu fígúru sem límmiða á hjálminn sinn.

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10464

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Það sem kannski gleymdist í þessum pósti var að Geiri fór með 2 kúnna upp á 10,5 klst daginn áður en hann skrapp til að setja tímamet og til að svara Steinari þá fór hann ekki í 2,5 tíma ferð seinnipartinn heldur fór hann í ísklifur með 4 kúnna og ætlaði ekki að fást til að hætta, mig minnir að hann hafi verið frá kl 13 til kl 19 í klifrinu.

Re:Hrútsfjall fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10466

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Glæsilegur tími Geiri, ég minnist þess að í sumar þegar þú komst og vildir fá hitara til að hafa í tjaldinu þínu yfir nótt, því þú ætlaðir svo sannalega ekki að sofa í óupphituðu tjaldi ;)

en ekki ætla ég að reyna að leika þetta eftir
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek