Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skessuhornið-NA hryggurinn

Skessuhornið-NA hryggurinn 05 feb 2012 23:42 #12845

Skrifað 05 feb 2012 23:42
Hæhæ

Í dag fórum ég, Björk, Styrmir og Doddi NA-hrygginn á Skessuhorn. Við bröltum upp með skíðin á bakinu og renndum okkur niður í SV skálina. Flott skíðafæri miðað við rigningar síðustu daga. Ekki blár ís en stundum nokkuð hart. Klifrið var að venju hressandi og skemmtilegt. Öðruvísi með plankana á bakinu en klárlega þess virði.

Ég er fáránlega sátt með að hafa loks farið þarna upp með skíðin, eitthvað sem ég er búin að láta mig dreyma lengi um. Mæli með því!


skessuhorn181_edited2.jpg
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek