Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísklifurfestival 2012

Ísklifurfestival 2012 28 des 2011 13:13 #12592

Skrifað 28 des 2011 13:13
Þá er komið að því að huga að hvar festivalið verður haldið í ár. Ný frétt um þetta má sjá á forsíðu vefsins og könnun þar sem innskráðir notendur geta kosið um hvaða stað þeir vilji halda festivalið í ár.

Beinn linkur á frétt hér

Kv.
Arnar

Re: Ísklifurfestival 2012 28 des 2011 13:26 #12593

Skrifað 28 des 2011 13:26
Metnaðarfull og spennandi dagskrá fram á vor kemur svo á vefinn seinna í dag.

Kv.

Stjórnin

Re: Ísklifurfestival 2012 05 jan 2012 13:24 #12633

Skrifað 05 jan 2012 13:24
Þá er fresturinn liðinn með könnunina um hvar festivalið á að vera. Þó þáttaka mætti hafa verið betri þá var Bídurdalur með langflest atkvæði og munum við taka mark á því.
Festivalið verður því haldið á Bíldudal núna í febrúar með austurlandið til vara. Þannig að núna er bara að biða og sjá og vona að veðrið brosi nú við okkur í ár svo við þufurm ekki að fresta þessu enn eina ferðina :)

Vill minna menn á að skrá sig svo hér. Allar fyrir spurnir mega koma framm hér á þráðinum eða senda okkur póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Kv.
Arnar

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 00:38 #12829

Skrifað 03 feb 2012 00:38
Er eitthvað að frétta nánar af ísfestivali? Er eitthvað í kortunum sem hægt er að lesa úr?

Einn sem er að láta sig dreyma um að draga fram axirnar ef veður leyfir,

Himmi

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 08:19 #12830

Skrifað 03 feb 2012 08:19


Já, þessi hláka er ekkert sérstaklega velkomin!

Eg ætla að heyra í okkar mönnum fyrir vestan í dag og sjá hver staðan er. Það má búast við að ísinn sé allur að breytast í vatn þessa dagana.

En það er allt klárt til að halda festival ef aðstæður leyfa.

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 09:25 #12831

Skrifað 03 feb 2012 09:25
Það var mjög hlýtt í síðustu viku á Ísafirði en ekki mikil rigning. Ennþá er nægur snjór og ís til fjalla. Núna er um 3ja stiga hiti og hefur snjóað í fjöll. Allur ís virðist blár og fallegur ennþá.
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 11:26 #12833

Skrifað 03 feb 2012 11:26
Sá fyrsti sem getur svarað mér því af hverju ís er blár fær að launum Stroh pela á næsta ísklifurfestivali frá mér.

Himmi

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 12:44 #12834

Skrifað 03 feb 2012 12:44
Því vetnistengi gleypa aðra liti í litrófinu.

Útskýring.
Við getum séð ljós sem er með bylgjulengd á bilinu 390-750 nm, fjólublátt og blátt er neðst á skalanum (390 - ca. 500 nm) svo kemur grænn, gulur, appelsínugulur og loks rauður (620-750 nm). Snjór endurkastar öllu litrófinu (þ.e.a.s. sýnilega sviðinu) og við sjáum hann því sem hvítan á lit. Snjór endurkastar þessu að miklu leyti vegna þess að loftbólur í snjónum sundra ljósinu með þeim afleiðingum að það endurkastast. Þéttur ís sem er með lítið að loftbólum hleypur hinsvegar ljósinu lengra inní sig og ís (og vatn ef því er að skipta) gleypir ljós með bylgjulendir yfir eitthvað x (gult og rautt ljós) en endurkastar ljósi með lægri bylgjulengdir t.d. bláu ljósi.

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 12:54 #12835

Skrifað 03 feb 2012 12:54
Hefur e-ð heyrst í jóni Þórðar á Bíldudal? Hitastigið hefur verið að rokka í kringum frostmarkið síðustu daga og vikur, erfitt að gera sér grein fyrir hvaða áhrif það hefur haft á ís í Arnarfirðinum.

Skabbi

Re: Ísklifurfestival 2012 03 feb 2012 13:46 #12836

Skrifað 03 feb 2012 13:46


ég heyrði í Valla áðan, hann ætlar að renna á Bíldudal á sunnudaginn og kanna aðstæður.

Gummi er svo í sambandi við Jón og fréttir af veðri, færð og aðstæðum koma í dag eða á morgun.

Þá koma líka upplýsingar um gistingu og slíkt.

Atli

Re: Ísklifurfestival 2012 06 feb 2012 11:36 #12848

Skrifað 06 feb 2012 11:36
Erum við að tala um frestun?

Re: Ísklifurfestival 2012 06 feb 2012 15:53 #12849

Skrifað 06 feb 2012 15:53
Það eru allar líkur á því en við ætlum ekki að ákveða það alveg strax. Það er ís á svæðinu núna en það er líka 7 stiga hiti og fullt af úrkomu á leiðinni..


-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ísklifurfestival 2012 06 feb 2012 16:51 #12850

Skrifað 06 feb 2012 16:51
Já, þetta er ekki beint hagstæð veður spá.

Það langar auðvitað engann að keyra í fýluferð alla leiðina á Bíldudal.

Við fylgjumst með veður spá og ráðfærum okkur við þá fyrir vestan en tökum loka ákvörðun um hádegi á miðvikudag.

Atli Páls,

Re: Ísklifurfestival 2012 22 feb 2012 16:29 #12929

Skrifað 22 feb 2012 16:29
Hæ,
Ef eitthvað verður af festivalinu á næstunni erum við nokkrar úr Ársæl að velta fyrir okkur að koma, fer svoldið eftir á hvaða helgi þetta lendir hverjar kæmust.
Er orðið of seint að skrá sig?
Er eitthvað að frétta af þessu?
Kv Dísa
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.66 sek