Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Alpaævintýri - video og myndir

Alpaævintýri - video og myndir fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10418

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Nú er komið ágætis magn af efni frá okkur Magga Smára, Jóni Heiðari og Gumma stóra eftir alpaævintýri sumarsins.

Eflaust hafa flestir þegar séð myndirnar hans Gumma á síðu hans og félaga á www.climbing.is. Þeir sem eiga það eftir eiga gott í vændum enda rugl flottar myndir sem Gummi hinn mikli tók.

Til viðbótar við það er ég búinn að klippa saman tvö videó frá fyrstu tveimur dögunum og fleiri eru á leiðinni. Þessi video, ásamt frásögn frá dögunum tveimur eru á eftirfarandi síðu goingup2010.wordpress.com en sú síða segir jafnframt frá öllum undirbúningi ásamt öðru misáhugaverðu fyrir fjallagarpa og gellur.

En videóin eru hér að neðan, vilji menn bara kíkja á þau.





Vonandi hafa menn og konur gaman af frásögnum sem þessum enda var alpaferð okkar félaga allskostar frábær og við kjör aðstæður.

Re: Alpaævintýri - video og myndir fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10419

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Frábær vídjó. Maður myndi vilja sjá meira svona úr leiðöngrum ísalpfélaga :)

Re:Alpaævintýri - video og myndir fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan #10447

Skrifað fyrir 1 ári, 5 mánuðum síðan
Fyrst ég er byrjaður þá sakar ekki að halda áfram að henda inn nýjustu videoum á síðuna.

Þetta vid er frá degi þrjú en það var annar af tveimur hápunktum ferðarinnar.

Lyskamm hryggurinn og tindarnir tveir eru skrambi góð dagsskemmtun.

Alpaævintýr - video frá degi fjögur fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10458

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Ég held áfram að dæla þessu inn.

Dagur 4 af 5 - endað í og gist í hæsta skála/gististað í Evrópu, Margherita hut, á tindi Signalkuppe (4.552 metrar).

Re:Alpaævintýri - video og myndir fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10461

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Like ;) .. Flott video og geðveikt útsýni!

Alpaævintýr - video frá degi 5, síðasta deginum fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10463

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Og hér kemur síðasta videoið úr alpaferðinni, dagur fimm, en þessir fimm dagar áttu að vera upphitun fyrir eitthvað annað og meira en veður stöðvaði slíkar áætlanir.



Til viðbótar við þetta mun video um klettaklifur á Ítalíu rata á víðnetið, en við flúðum í það fyrst það viðraði ekki nógu vel fyrir Matterhorn.

Re:Alpaævintýr - video frá degi 5, síðasta deginum fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10465

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Flott og skemmtileg vídjó.

Þetta hefur verið góð ferð hjá ykkur þrátt fyrir að aðaltakmarkið hafi gefið ykkur fingurinn.

Manni langar bara á fjöll.

Klettaklifur, klettadýfur og Deep water soloing fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan #10472

Skrifað fyrir 1 ári, 4 mánuðum síðan
Takk fyrir það Björk. Fyrst að takmarkinu var ekki náð var haldið til Ítalíu og þar ýmislegt prýðisskemmtilegt brallað eins og klettaklifur, klettadýfur og deep water soloing.

Þannig að hér kemur allra síðasta video úr ferðalagi okkar félaga, frá Lago di Como - Italia.

Vonandi höfðu menn gagn og gaman af.

  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek